Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
„Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði. Í raun er það svo að ekkert fjármálafyrirtæki hér á landi býður viðskiptavinum sínum jafn fjölbreytta fjármálaþjónustu og Arion samstæðan. Bankinn er áfram fjárhagslega sterkur og eru eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 töluvert umfram þær kröfur sem Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir og ákvæði í lögum. Lausafjárstaða bankans var sömuleiðis mjög sterk í lok ársins og vel yfir lögbundnum lágmörkum. Stjórn Arion banka mun leggja fram þá tillögu á aðalfundi þann 13. mars að greiddur verði arður í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans, eða 9 krónur á hlut.
Segja má að það sem helst hafi einkennt árið 2023 sé barátta við háa verðbólgu og jarðhræringar á Reykjanesskaga sem tefldu framtíð byggðar í Grindavík í tvísýnu. Sú erfiða staða er uppi að íbúar Grindavíkur vita ekki hvenær, eða hvort, hægt verður að flytjast aftur til bæjarins. Vegna óvissunnar ákváðum við ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum í nóvembermánuði að frysta íbúðalán vegna húsnæðis í Grindavík í þrjá mánuði og fella niður vexti og verðbætur lánanna á tímabilinu. Snemma árs 2024 framlengdum við úrræðið í þrjá mánuði, eða til aprílloka. Þannig viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja við bakið á íbúum Grindavíkur.
Á árinu kynntum við tvær nýjungar sem koma til móts við þá viðskiptavini okkar sem standa frammi fyrir hærri greiðslubyrgði í kjölfar þess að fastvaxtatímabili íbúðalána þeirra lýkur. Annars vegar bjóðum við upp á svokallað greiðslufrí í einn mánuð á ári og hins vegar svokallað greiðsluþak sem felst í því að við lækkum greidda vexti um allt að 4 prósentustig. Sú vaxtagreiðsla sem frestast færist á höfuðstól lánsins. Þessi lausn hentar þeim sem vilja lækka greiðslubyrði en vilja áfram óverðtryggt lán. Jafnframt höfum lagt okkur fram um að setja okkur í samband við þennan hóp og fara með fólki yfir þá kosti sem í boði eru.
Á árinu 2023 horfðum við sérstaklega til stöðu kynjanna þegar kemur að fjárfestingum og eignastöðu. Við lögðumst í mikla greiningarvinnu og eins og við var að búast er því miður enn langt í land áður en jafnræði ríkir á milli kynjanna þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign og þátttöku á fjármálamarkaði. Því ýttum við úr vör langtíma átaksverkefni, Konur fjárfestum, með það fyrir augum að hvetja konur til að láta til sín taka á sviði fjárfestinga. Við höfum enn fremur sett okkur árangurstengd markmið til næstu ára. Átakið hefur farið vel af stað og húsfyllir verið á þeim fræðslufundum sem við höfum staðið fyrir.
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's Investors Service veitti Arion banka í fyrsta sinn lánshæfiseinkunn á sértryggð skuldabréf. Arion banki fékk langtímaeinkunnina Aa2 sem útgefandi sértryggðra skuldabréfa í evrum. Arion var fyrstur íslenskra banka til að gefa út slík skuldabréf sem í dag eru mikilvægur hluti af fjármögnun íslenska fjármálakerfisins. Um er að ræða hæstu lánshæfiseinkunn íslensks útgefanda og er hún þremur þrepum yfir lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Þetta er mikilvægur áfangi sem mun stækka hóp fjárfesta sértryggðra skuldabréfa bankans.
Brynjólfur Bjarnason, sem var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi í nóvember 2014 og kjörinn formaður stjórnar í mars 2019, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Það eru því viss tímamót hjá okkur og vil ég fyrir hönd starfsfólks Arion þakka Brynjólfi fyrir afar ánægjulegt og árangursríkt samstarf.“
Brynjólfur Bjarnason, fráfarandi stjórnarformaður Arion banka:
„Eftir að hafa setið í áratug í stjórn Arion banka og þar af gegnt stjórnarformennsku síðastliðin fimm ár, tel ég rétt að láta gott heita. Það hefur verið afar ánægjulegt að taka þátt í vegferð bankans sem hefur tekið miklum breytingum á þessum tíu árum.
Arion hefur til að mynda haft forystu um innleiðingu stafrænnar og þægilegrar fjármálaþjónustu hér á landi. Þá hefur bankinn aukið þjónustuframboð sitt verulega, það eru ekki mörg fjármálafyrirtæki í Evrópu sem bjóða viðskiptavinum sínum jafn fjölbreytta fjármálaþjónustu og Arion banki og dótturfélög hans eftir að tryggingar urðu hluti af þjónustunni. Rekstur bankans hefur gengið vel og efnahagur hans er traustur. Í ljósi þessara styrkleika er ég sannfærður um að Arion sé afar vel í stakk búinn að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Ég þakka hluthöfum bankans fyrir traustið. Starfsfólki Arion, stjórn og viðskiptavinum þakka ég árangursríkt samstarf.“
Tilnefningarnefnd Arion banka, sem auglýsti eftir framboðum til stjórnar 4. janúar síðastliðinn, hefur lengt frest til að tilkynna nefndinni um framboð, kjósi frambjóðendur að fá umsögn tilnefningarnefndar, til 21. febrúar næstkomandi. Almennur framboðsfrestur er sem fyrr 5 dögum fyrir aðalfund, til 8. mars 2024 kl. 16.00.
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Ólafur Hrafn Höskuldsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á vefsíðu bankans.
Markaðsdagur Arion banka verður haldinn þann 1. mars og aðalfundur bankans 13. mars.
Press release Arion Bank Q4 2023
Arion Bank investor presentatation Q4 2023
Arion banki ársreikningur samstæðu 2023
Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.