skuggi á takka sem opnar navbar

Skráðu þig í viðskipti á nokkrum mínútum


Með nokkrum smellum getur þú orðið viðskiptavinur Arion banka og notið allra kosta og sérkjara sem í boði eru.

Grunnþjónusta

Kjörin fyrir ungt fólk og þá sem kjósa einfaldan lífstíl.

  • Almennt debetkort fyrir dagleg útgjöld
  • Bættu við sparnaðarreikningi til að safna fyrir sérstökum tilefnum
VeljaNánar

Vildarþjónusta

Sniðin til að uppfylla allar þínar þarfir í bankaþjónustu.

  • Debetkort fyrir dagleg útgjöld
  • Sparnaðarreikningur fyrir sérstök tilefni
  • Kreditkort sem býður upp á greiðslufrest og tryggingar, tilvalið fyrir netviðskipti og í ferðalögin
  • Lægri ár- og færslugjöld ásamt öllum fríðindum Vildarþjónustunnar
VeljaNánar

Námsmannaþjónusta

Þægileg bankaþjónusta fyrir námsmenn sem auðveldar þér að einbeita þér að náminu og njóta lífsins.

  • Debetkort - ekkert árgjald og lægri færslugjöld
  • Valfrjáls sparnaðarreikningur til þess að setja smá til hliðar sem kann að koma að góðum notum að námi loknu
  • Bláa kortið er valfrjálst og það veitir afslætti hjá samstarfsaðilum
VeljaNánar

Einfalt ferli

Aðeins þrjú einföld skref og þú hefur skráð þig í viðskipti. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að skrá sig og þú getur gengið frá því hvar sem þér hentar. Þú færð strax aðgang að reikningunum, netbankanum og við sendum kortin þín heim.

Rafræn skilríki

Þú getur skráð þig inn í netbankann og appið með rafrænum skilríkjum og SMS auðkenningu. Við hvetjum til notkunar rafrænna skilríkja í farsíma. Með rafrænum skilríkjum er hægt að auðkenna sig og skrifa undir skjöl á netinu.

Hér getur þú nálgast nánari upplýsingar um rafræn skilríki

Nýr launareikningur

Láttu okkur sjá um að tilkynna vinnuveitanda þínum um nýjan launareikning.

Fjölbreytt bankaþjónusta

Við bjóðum fría fjármálaráðgjöf þar sem ráðgjafar okkar fara með þér yfir lánamál, tryggingar, lífeyrissparnað og fleira. Við hjálpum þér að koma fjármálunum í gott horf.

Þú getur stofnað vörslureikning í netbanka Arion. Við bjóðum upp á úrval sjóða og rauntímaviðskipti með íslensk hlutabréf.

Ef þú þarft aðstoð nærðu sambandi við okkur í síma, með tölvupósti eða netspjalli. Þú getur líka litið við í næsta útibúi.

Spurt & svarað

Ferlið tekur aðeins um fimm mínútur frá upphafi til enda.

Þú velur þjónustuleið m.t.t. fjölda þjónustuþátta. Ef þú hefur ekki áhuga á kreditkorti, hentar grunnþjónustan þér vel. Vildarþjónustan hentar fyrir þá sem kjósa breitt vöruframboð og um leið gefur hún betri kjör. Námsmönnum bjóðast sérstök námsmannakjör með námsmannaþjónustunni.

Til þess að geta klárað ferlið rafrænt þarf rafræn skilríki. Ef þú átt ekki rafræn skilríki þá getur þú komið í heimsókn í næsta útibú og við aðstoðum þig við að virkja rafræn skilríki eða stofna til viðskipta.

Reikningarnir verða virkir strax.

Þú getur valið þér heimild innan ákveðinna marka.

Ef þú ert með rafræn skilríki þá þarftu ekki að koma í útibú.

Til þess að loka reikningum, kortum o.fl. hjá fyrri viðskiptabanka þá þarft þú að setja þig í samband við okkur eða fyrri viðskiptabanka og óska eftir flutningi viðskipta. Unnið er að því að leysa flutninga af þessu tagi rafrænt.

Í flestum tilvikum nægir að endurræsa símann. Ef ekki þá getur þú haft samband við okkur og við aðstoðum þig.

Við sendum kortin á lögheimili þitt og þau berast innan fimm virkra daga.