• Netbankinn
Netbankinn

Fjárfestatengsl

Afkomukynning 2F 2024
  • Forsíðuyfirlit
  • Fjárhagsupplýsingar
    • Uppgjör og ársskýrslur
    • Áhætta og eiginfjárhlutfall
    • Ársskýrslur
    • Aðrar kynningar
    • Fjárhagsleg markmið
    • Greinendur
  • Hlutabréfafjárfestar
    • Fjárhagsdagatal
    • Áskrift
    • Tengiliðir
    • Lánshæfismat
    • Hluthafalisti
    • Flagganir
    • Skráð hlutabréf
  • Skuldabréfafjárfestar
    • Fjármögnun og útgáfulýsing
    • Endanlegir skilmálar
    • Sértryggð skuldabréf
    • Græn skuldabréf
    • Útgáfuáætlun Arion banka árið 2023
    • Lánshæfismat
    • Tengiliðir skuldabréfafjárfesta
  • Markaðsdagur Arion banka
    • Markaðsdagur Arion banka 2019
    • Markaðsdagur Arion banka 2021
  • Kauphallartilkynningar
    • Áskrift að Kauphallartilkynningum
  • Tengiliðir
  • Hluthafafundir
    • Aðalfundur / AGM 13.03.2024
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2023
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2022
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2021
    • Framhaldsaðalfundur / Extended AGM 14.05.2020
    • Aðalfundur / AGM 17.03.2020
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 09.08.2019
    • Aðalfundur / AGM 20.03.2019
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 05.09.2018
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2018
  • Stjórnarhættir
  • Starfsemi
  • Dótturfélög
  • Hlutafjárútboð
  • English

Frétt

26. júlí 2023

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2023

  • Hagnaður Arion banka á 2F 2023 var 7.091 m.kr., samanborið við 10.050 m.kr. á 2F 2022
  • Arðsemi eiginfjár var 15,5%, samanborið við 22,6% á 2F 2022
  • Hagnaður á hlut var 4,84 krónur, samanborið við 6,70 á 2F 2022
  • Hreinn vaxtamunur var 3,2%, samanborið við 3,1% á 2F 2022
  • Sterkur fjórðungur í þóknanastarfsemi og námu heildarþóknanir 4,2 mö.kr.
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknanatekjur og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 8,0% frá 2F 2022
  • Aðrar tekjur voru jákvæðar einkum vegna 1,6 ma.kr. endurmats á fjárfestingareigninni Blikastöðum
  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 39,4% á 2F 2023, samanborið við 42,0% á 2F 2022
  • Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 3,6% frá árslokum 2022
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 23,9% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,9% þann 30. júní 2023
  • Viðbótar eiginfjárkarfa undir stoð II (Pillar II) var lækkuð úr 3,5% í 2,1% í lok júní 2023
  • Dótturfélagið Vörður innleiddi alþjóðlega reikningsskilastaðalinn IFRS 17 Tryggingasamningar þann 1. janúar 2023. Innleiðingin fól meðal annars í sér breytta framsetningu tryggingarekstrarins og breyttar samanburðarfjárhæðir

Hagnaður Arion banka nam 7.091 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2023 og 13.382 m.kr. á fyrri helmingi ársins. Arðsemi eiginfjár var 15,5% á ársfjórðungnum og 14,5% á fyrri helmingi ársins.

Heildareignir námu 1.518 mö.kr. í lok júní, samanborið við 1.466 ma.kr. í árslok 2022. Lán til viðskiptavina jukust um 4,6% frá áramótum. Aukningin nam 7,9% í lánum til fyrirtækja og 1,8% í lánum til einstaklinga, aðallega íbúðalán. Aukning í innlánum frá viðskiptavinum var 3,4% á fyrri helmingi ársins, einkum frá einstaklingum og stærri fyrirtækjum. Heildar eigið fé nam 186 mö.kr. í lok júní. Eigið fé lækkaði frá áramótum vegna arðgreiðslu og endurkaupa á hlutabréfum bankans, samtals að fjárhæð 15,6 ma.kr., en afkoma fjórðungsins kemur til hækkunar á eigin fé.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 23,9% í lok júní og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,9%. Hlutföllin taka tillit til væntrar arðgreiðslu sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Uppgjör Arion banka á öðrum ársfjórðungi er í takt við okkar væntingar og þann stöðuleika sem hefur einkennt afkomu bankans síðustu misseri. Áfram er arðsemi fjórðungsins umfram 13% markmið bankans og öll helstu fjárhagsmarkmið náðust. Við sjáum þó að það hægir almennt á vexti sem kemur ekki á óvart þar sem hægt hefur á vexti í íslensku efnahagslífi. Það eru ýmis jákvæð merki í efnahagslífinu um þessar mundir, m.a. fer verðbólgan loks lækkandi og svo hafa alþjóðlegu matsfyrirtækin S&P Global Ratings og Moody‘s bæði nýverið breytt horfum um lánshæfi ríkissjóðs úr stöðugum í jákvæðar.

Í júní tilkynnti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands niðurstöðu árlegs mats á áhættuþáttum í starfsemi Arion banka og fól niðurstaðan í sér að viðbótareiginfjárkrafa fjármálaeftirlitsins lækkaði um 1,4 prósentustig. Þetta er jákvæð niðurstaða og við lok annars ársfjórðungs nam hlutfall eiginfjárþáttar 1 hjá bankanum 18,9%, sem er 4 prósentustigum yfir lögbundnum kröfum. Að sama skapi er lausafjár- og fjármögnunarstaða Arion banka áfram sterk.

Samstarf bankans og Varðar heldur áfram að skila góðum árangri og jukust tryggingaiðgjöld á öðrum ársfjórðungi hjá Verði um 14,4% samanborið við sama fjórðung síðasta árs. Mestur er vöxturinn í sölu trygginga til fyrirtækja sem er afrakstur þess að fyrirtækjaþjónusta Varðar er nú hluti af fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Í þessari þróun felst að tekjugrunnur Varðar hefur breikkað og áhættudreifing aukist.

Það bárust jákvæðar fréttir fyrr í þessum mánuði þegar tilkynnt var um kaup danska félagsins Coloplast á vestfirska sprotafyrirtækinu Kerecis. Óhætt er að segja að Kerecis sé frábært dæmi um vel heppnaða nýsköpun hér á landi þar sem hráefni sem áður var hent er breytt í dýrmæta lækningavöru. Það er mikilvægt að við höldum áfram að búa vel að nýsköpun hér á landi þar sem hugverkaiðnaðurinn er nú fjórða stoðin í útflutningstekjum þjóðarinnar. Hlutverk banka er að taka áhættu með sínum viðskiptavinum, einstaklingum og fyrirtækjum, og það gerum við á hverjum degi. Það er ánægjulegt að hafa verið þó ekki nema lítill þátttakandi í vegferð Kerecis og mun bankinn færa til tekna um 560 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi vegna sölu félagsins. Fleiri íslensk sprotafyrirtæki eru að gera spennandi hluti í dag, til að mynda félög eins og Controlant og Amaroq Minerals sem við höfum unnið náið með síðustu ár og verður spennandi að fylgjast með þróun þeirra á næstu árum. Jafnframt hafa rótgróin fyrirtæki sem sinna nýsköpun með markvissum hætti í sinni starfsemi verið að ná góðum árangri og má þar til dæmis nefna Hampiðjuna, en Arion banki hafði nýverið umsjón með vel heppnuðu almennu hlutafjárútboði félagsins sem í kjölfarið snéri aftur á Aðalmarkað kauphallarinnar.

Á verðbólgutímum hefur reynst erfitt að ávaxta sparnað þannig að hann haldi í við verðbólgu án þess að festa sparnaðinn í þrjú ár. Þetta breyttist í maí þegar Arion banki kynnti nýja verðtryggða sparnaðarleið fyrir einstaklinga sem er aðeins bundin í 90 daga. Breytingar á lögum sem tóku gildi 1. júní, og fólu í sér að verðtryggð innlán þurfa ekki lengur að vera bundin í þrjú ár, gerðu þetta kleift. Þetta er auðvitað jákvæð breyting fyrir neytendur og tóku viðskiptavinir okkar þessari nýju sparnaðarleið fagnandi.

Í júní kynnti Mosfellsbær tillögur að rammahluta aðalskipulags Blikastaðalandsins, sem er stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins og er í eigu Arion banka. Landið sem er um 93 hektarar verður þróað enn frekar og deiliskipulag kynnt á seinni stigum. Gert er ráð fyrir að þar muni rísa um 3.700 íbúðir, blanda fjölbýlis og sérbýlis, auk 150 íbúða fyrir 55 ára og eldri, skóla, íþróttaaðstöðu og atvinnuhúsnæðis. Í ljósi þessa mikilvæga áfanga hjá Mosfellsbæ og þar með minni óvissu varðandi þróun verkefnisins hækkaði bankinn verðmat sitt á landinu sem hafði jákvæð áhrif á niðurstöðu ársfjórðungsins. Verður spennandi að fylgjast með uppbyggingu svæðisins enda mikilvæg viðbót við húsnæðismarkaðinn.“

Fundur/vefstreymi fyrir markaðsaðila 27. júlí klukkan 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 27. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans. 

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Q2 2023 - Press release Arion Bank

Arion Bank Investor Presentation Q2 2023

Arion Bank Condensed Consolidated Interim Financial Statements 1 January - 30 June 2023

 

Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.

 

Til baka


Fleiri fréttir

07. maí 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi.
More
30. apríl 2024

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Hagnaður Arion banka á 1F 2024 var 4.432 m.kr., samanborið við 6.291 m.kr. á 1F 2023. Arðsemi eiginfjár var 9,1%, samanborið við 13,7% á 1F 2023.
More
07. febrúar 2024

Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2023 og á árinu 2023

Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði.
More
26. október 2023

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
More
26. júlí 2023

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 7.091 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2023 og 13.382 m.kr. á fyrri helmingi ársins. Arðsemi eiginfjár var 15,5% á ársfjórðungnum og 14,5% á fyrri helmingi ársins.
More
04. maí 2023

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.291 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eiginfjár var 13,7%. Heildareignir námu 1.501 ma.kr. í lok mars, samanborið við 1.470 ma.kr. í árslok 2022.
More

    Hafðu samband


    Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík • kt: 581008-0150 • Swift: ESJAISRE • arionbanki@arionbanki.is