• Netbankinn
Netbankinn

Fjárfestatengsl

Afkomukynning 2F 2024
  • Forsíðuyfirlit
  • Fjárhagsupplýsingar
    • Uppgjör og ársskýrslur
    • Áhætta og eiginfjárhlutfall
    • Ársskýrslur
    • Aðrar kynningar
    • Fjárhagsleg markmið
    • Greinendur
  • Hlutabréfafjárfestar
    • Fjárhagsdagatal
    • Áskrift
    • Tengiliðir
    • Lánshæfismat
    • Hluthafalisti
    • Flagganir
    • Skráð hlutabréf
  • Skuldabréfafjárfestar
    • Fjármögnun og útgáfulýsing
    • Endanlegir skilmálar
    • Sértryggð skuldabréf
    • Græn skuldabréf
    • Útgáfuáætlun Arion banka árið 2023
    • Lánshæfismat
    • Tengiliðir skuldabréfafjárfesta
  • Markaðsdagur Arion banka
    • Markaðsdagur Arion banka 2019
    • Markaðsdagur Arion banka 2021
  • Kauphallartilkynningar
    • Áskrift að Kauphallartilkynningum
  • Tengiliðir
  • Hluthafafundir
    • Aðalfundur / AGM 13.03.2024
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2023
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2022
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2021
    • Framhaldsaðalfundur / Extended AGM 14.05.2020
    • Aðalfundur / AGM 17.03.2020
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 09.08.2019
    • Aðalfundur / AGM 20.03.2019
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 05.09.2018
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2018
  • Stjórnarhættir
  • Starfsemi
  • Dótturfélög
  • Hlutafjárútboð
  • English

Frétt

26. október 2023

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2023

  • Hagnaður Arion banka á 3F 2023 var 6.131 m.kr., samanborið við 5.008 m.kr. á 3F 2022
  • Arðsemi eiginfjár var 12,9%, samanborið við 10,9% á 3F 2022
  • Hagnaður á hlut var 4,19 krónur, samanborið við 3,35 á 3F 2022
  • Hreinn vaxtamunur var 3,0%, samanborið við 3,2% á 3F 2022
  • Góður fjórðungur í þóknanastarfsemi og námu heildarþóknanir 3,8 mö.kr.
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 2% í samanburði við 3F 2022
  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 38,2% á 3F, samanborið við 37,5% á 3F 2022
  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 5,1% frá árslokum 2022
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 24,4% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,4% í lok september og jókst um 0,5 prósentustig í fjórðungnum

Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.

Heildareignir námu 1.541 ma.kr. í lok september, samanborið við 1.466 ma.kr. í árslok 2022. Lán til viðskiptavina jukust um 5,4% frá áramótum. Aukningin nam 7,9% í lánum til fyrirtækja og 3,3% í lánum til einstaklinga, aðallega íbúðalán. Aukning í innlánum frá viðskiptavinum var 6,7% á fyrstu níu mánuðum ársins. Heildar eigið fé nam 193 mö.kr. í lok september. Eigið fé hækkaði frá áramótum vegna afkomu fyrstu níu mánaða ársins en á móti koma arðgreiðsla og endurkaup á hlutabréfum bankans að fjárhæð 15,6 ma.kr.

Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 24,4% í lok september og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,4%. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 24,1% í lok september og hlutfall eiginfjárþáttar 1 19,0%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma bankans á þriðja ársfjórðungi var í samræmi við okkar markmið og ef horft er til fyrstu níu mánaða ársins þá erum við að ná öllum helstu rekstrarmarkmiðum. Við erum með óvenju fjölbreytt þjónustuframboð sem felur í sér dreifða tekjumyndun og ásamt áherslu okkar á skilvirkni þá skilar það sér í stöðugum og traustum rekstri. Eiginfjárstaða bankans er áfram sterk sem og lausafjárstaða og voru þessir þættir meðal þess sem lánshæfismatsfyrirtækið Moody‘s horfði til þegar það hækkaði nýverið lánshæfiseinkunn Arion banka í flokk A-3.

Í rökstuðningi sínum nefndi Moody‘s einnig samþættingu okkar á banka- og tryggingastarfsemi. Það hefur einmitt verið ánægjulegt hversu vel samstarf Arion banka og Varðar hefur gengið síðasta árið. Saman leitum við stöðugt leiða til að samþætta þjónustuna þannig að hún nýtist viðskiptavinum okkar sem best og það fer ekki á milli mála að æ fleiri viðskiptavinir okkar – bæði einstaklingar og fyrirtæki – sjá sér hag í að nýta þjónustu beggja félaga.

Á þriðja ársfjórðungi hægði á vexti lánasafnsins sem meðal annars endurspeglar minni hagvöxt í íslensku hagkerfi. Yfirleitt er það svo að við fögnum góðum hagvexti en nú er verkefnið að ná niður verðbólgu og vöxtum og því jákvætt að það dragi úr hagvexti. Hátt vaxtastig kemur við heimilin og fyrirtækin í landinu og hefur dregið úr neyslu og umsvifum almennt, í takt við markmið Seðlabankans. Þau heimili sem völdu að festa vexti íbúðalána sinna þegar vaxtastig var lágt hafa notið góðs af því og verið í ákveðnu skjóli. Það er því viðbúið að fyrir marga verði það þungt fyrir heimilisbókhaldið þegar fastvaxtatímabili íbúðalánsins líkur. Við höfum því undanfarnar vikur sett okkur í samband við þennan hóp viðskiptavina til að fara yfir valkostina. Í boði eru ýmsir kostir til að lækka greiðslubyrði og mikilvægt að hver og einn kynni sér þá og meti hvað henti best. Ef staðan er þröng þá metum við hvert tilvik fyrir sig og leitum sameiginlega að lausn. Við hvetjum alla sem hafa áhyggjur af stöðunni til að hafa samband við okkur til að fara yfir þá valkosti sem eru til staðar.

Í október kynntum við skipulagsbreytingar sem fólst í stofnun sérstaks sviðs, rekstur og menning. Markmið breytinganna er aukið samstarf mikilvægra stoðsviða, aukin skilvirkni í rekstri, markviss stýring umbreytingarverkefna og enn skýrari fókus á þjónustu og upplifun viðskiptavina. Sviðið mun jafnframt gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun og mótun fyrirtækjamenningar Arion banka og leiðir Birna Hlín Káradóttir nýja sviðið, en hún hefur gengt starfi yfirlögfræðings bankans frá árinu 2019 og setið í framkvæmdastjórn frá árinu 2020. Menning og áhættuvitund skipta miklu í starfsemi fjármálafyrirtækja og var það því sérstaklega ánægjulegt að þegar Moody‘s hækkaði lánshæfiseinkunn okkar þá hækkaði fyrirtækið einnig þá einkunn sem snýr að áhættu tengdri umhverfis- og samfélagsþáttum og stjórnarháttum bankans og tók sérstaklega fram að áhætta vegna stjórnarhátta vær lág í ljósi fjárhagsstefnu bankans og áhættustýringar.“

Fundur/vefstreymi fyrir markaðsaðila 27. október klukkan 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður föstudaginn 27. október klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka, og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Birna Hlín Káradóttir framkvæmdastjóri reksturs og menningar mun jafnframt kynna nýlegar skipulagsbreytingar innan bankans. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið beint á financialhearings.com og á fjárfestatengslavef bankans. 

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð sem birtist fyrir neðan vefstreymið. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Q3 2023 - Press release Arion Bank

Arion Bank - Investor presentation Q3 2023

Arion Bank Condensed Consolidated Financial Statements 30 September 2023

 

Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.

 

Til baka


Fleiri fréttir

07. maí 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi.
More
30. apríl 2024

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Hagnaður Arion banka á 1F 2024 var 4.432 m.kr., samanborið við 6.291 m.kr. á 1F 2023. Arðsemi eiginfjár var 9,1%, samanborið við 13,7% á 1F 2023.
More
07. febrúar 2024

Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2023 og á árinu 2023

Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði.
More
26. október 2023

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
More
26. júlí 2023

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 7.091 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2023 og 13.382 m.kr. á fyrri helmingi ársins. Arðsemi eiginfjár var 15,5% á ársfjórðungnum og 14,5% á fyrri helmingi ársins.
More
04. maí 2023

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.291 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eiginfjár var 13,7%. Heildareignir námu 1.501 ma.kr. í lok mars, samanborið við 1.470 ma.kr. í árslok 2022.
More

    Hafðu samband


    Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík • kt: 581008-0150 • Swift: ESJAISRE • arionbanki@arionbanki.is