• Netbankinn
Netbankinn

Fjárfestatengsl

Afkomukynning 2F 2024
  • Forsíðuyfirlit
  • Fjárhagsupplýsingar
    • Uppgjör og ársskýrslur
    • Áhætta og eiginfjárhlutfall
    • Ársskýrslur
    • Aðrar kynningar
    • Fjárhagsleg markmið
    • Greinendur
  • Hlutabréfafjárfestar
    • Fjárhagsdagatal
    • Áskrift
    • Tengiliðir
    • Lánshæfismat
    • Hluthafalisti
    • Flagganir
    • Skráð hlutabréf
  • Skuldabréfafjárfestar
    • Fjármögnun og útgáfulýsing
    • Endanlegir skilmálar
    • Sértryggð skuldabréf
    • Græn skuldabréf
    • Útgáfuáætlun Arion banka árið 2023
    • Lánshæfismat
    • Tengiliðir skuldabréfafjárfesta
  • Markaðsdagur Arion banka
    • Markaðsdagur Arion banka 2019
    • Markaðsdagur Arion banka 2021
  • Kauphallartilkynningar
    • Áskrift að Kauphallartilkynningum
  • Tengiliðir
  • Hluthafafundir
    • Aðalfundur / AGM 13.03.2024
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2023
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2022
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2021
    • Framhaldsaðalfundur / Extended AGM 14.05.2020
    • Aðalfundur / AGM 17.03.2020
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 09.08.2019
    • Aðalfundur / AGM 20.03.2019
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 05.09.2018
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2018
  • Stjórnarhættir
  • Starfsemi
  • Dótturfélög
  • Hlutafjárútboð
  • English

Frétt

07. febrúar 2024

Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2023 og á árinu 2023

Lykiltölur á 4F 2023

  • Hagnaður Arion banka á 4F 2023 var 6.224 m.kr., samanborið við 4.965 m.kr. á 4F 2022
  • Arðsemi eiginfjár var 12,7%, samanborið við 10,6% á 4F 2022
  • Hagnaður á hlut var 4,28 krónur, samanborið við 3,37 á 4F 2022
  • Hreinn vaxtamunur var 3,1%, óbreyttur frá 4F 2022
  • Góður fjórðungur í þóknanastarfsemi og námu heildarþóknanir 3,9 mö.kr.
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 2% í samanburði við 4F 2022
  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 54,9% á 4F, samanborið við 53,7% á 4F 2022

Lykiltölur fyrir árið 2023

  • Hagnaður Arion banka var 25.737 m.kr. á árinu, samanborið við 25.958 m.kr. á árinu 2022
  • Arðsemi eiginfjár var 13,6%, samanborið við 14,1% 2022
  • Hagnaður á hlut var 17,8 krónur, samanborið við 17,4 2022
  • Hreinn vaxtamunur var 3,1%, óbreyttur frá árinu 2022
  • Góður fjórðungur í þóknanastarfsemi og námu heildarþóknanir 16,4 mö.kr.
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), jukust um 7% í samanburði árið 2022
  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 44,7% á árinu, samanborið við 45,0% á árinu 2022
  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 4,1% frá árslokum 2022
  • Lán til viðskiptavina hafa aukist um 6,3% á árinu. Hækkun á lánum til fyrirtækja var 8,2% og 4,6% á lánum til einstaklinga, einkum íbúðalán
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 4,9% á árinu
  • Eiginfjárhlutfall bankans var 24,1% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 19,7% í lok desember
  • Stjórn bankans leggur til að um 13 milljarða króna arður verði greiddur, að teknu tilliti til eigin bréfa bankans, sem samsvarar 9,0 krónum á hlut

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði. Í raun er það svo að ekkert fjármálafyrirtæki hér á landi býður viðskiptavinum sínum jafn fjölbreytta fjármálaþjónustu og Arion samstæðan. Bankinn er áfram fjárhagslega sterkur og eru eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 töluvert umfram þær kröfur sem Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir og ákvæði í lögum. Lausafjárstaða bankans var sömuleiðis mjög sterk í lok ársins og vel yfir lögbundnum lágmörkum. Stjórn Arion banka mun leggja fram þá tillögu á aðalfundi þann 13. mars að greiddur verði arður í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans, eða 9 krónur á hlut.

Segja má að það sem helst hafi einkennt árið 2023 sé barátta við háa verðbólgu og jarðhræringar á Reykjanesskaga sem tefldu framtíð byggðar í Grindavík í tvísýnu. Sú erfiða staða er uppi að íbúar Grindavíkur vita ekki hvenær, eða hvort, hægt verður að flytjast aftur til bæjarins. Vegna óvissunnar ákváðum við ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum í nóvembermánuði að frysta íbúðalán vegna húsnæðis í Grindavík í þrjá mánuði og fella niður vexti og verðbætur lánanna á tímabilinu. Snemma árs 2024 framlengdum við úrræðið í þrjá mánuði, eða til aprílloka. Þannig viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja við bakið á íbúum Grindavíkur.

Á árinu kynntum við tvær nýjungar sem koma til móts við þá viðskiptavini okkar sem standa frammi fyrir hærri greiðslubyrgði í kjölfar þess að fastvaxtatímabili íbúðalána þeirra lýkur. Annars vegar bjóðum við upp á svokallað greiðslufrí í einn mánuð á ári og hins vegar svokallað greiðsluþak sem felst í því að við lækkum greidda vexti um allt að 4 prósentustig. Sú vaxtagreiðsla sem frestast færist á höfuðstól lánsins. Þessi lausn hentar þeim sem vilja lækka greiðslubyrði en vilja áfram óverðtryggt lán. Jafnframt höfum lagt okkur fram um að setja okkur í samband við þennan hóp og fara með fólki yfir þá kosti sem í boði eru.

Á árinu 2023 horfðum við sérstaklega til stöðu kynjanna þegar kemur að fjárfestingum og eignastöðu. Við lögðumst í mikla greiningarvinnu og eins og við var að búast er því miður enn langt í land áður en jafnræði ríkir á milli kynjanna þegar kemur að sparnaði, lífeyriseign og þátttöku á fjármálamarkaði. Því ýttum við úr vör langtíma átaksverkefni, Konur fjárfestum, með það fyrir augum að hvetja konur til að láta til sín taka á sviði fjárfestinga. Við höfum enn fremur sett okkur árangurstengd markmið til næstu ára. Átakið hefur farið vel af stað og húsfyllir verið á þeim fræðslufundum sem við höfum staðið fyrir.

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody's Investors Service veitti Arion banka í fyrsta sinn lánshæfiseinkunn á sértryggð skuldabréf. Arion banki fékk langtímaeinkunnina Aa2 sem útgefandi sértryggðra skuldabréfa í evrum. Arion var fyrstur íslenskra banka til að gefa út slík skuldabréf sem í dag eru mikilvægur hluti af fjármögnun íslenska fjármálakerfisins. Um er að ræða hæstu lánshæfiseinkunn íslensks útgefanda og er hún þremur þrepum yfir lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins. Þetta er mikilvægur áfangi sem mun stækka hóp fjárfesta sértryggðra skuldabréfa bankans.

Brynjólfur Bjarnason, sem var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi í nóvember 2014 og kjörinn formaður stjórnar í mars 2019, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Það eru því viss tímamót hjá okkur og vil ég fyrir hönd starfsfólks Arion þakka Brynjólfi fyrir afar ánægjulegt og árangursríkt samstarf.“

Brynjólfur Bjarnason, fráfarandi stjórnarformaður Arion banka:

„Eftir að hafa setið í áratug í stjórn Arion banka og þar af gegnt stjórnarformennsku síðastliðin fimm ár, tel ég rétt að láta gott heita. Það hefur verið afar ánægjulegt að taka þátt í vegferð bankans sem hefur tekið miklum breytingum á þessum tíu árum.

Arion hefur til að mynda haft forystu um innleiðingu stafrænnar og þægilegrar fjármálaþjónustu hér á landi. Þá hefur bankinn aukið þjónustuframboð sitt verulega, það eru ekki mörg fjármálafyrirtæki í Evrópu sem bjóða viðskiptavinum sínum jafn fjölbreytta fjármálaþjónustu og Arion banki og dótturfélög hans eftir að tryggingar urðu hluti af þjónustunni. Rekstur bankans hefur gengið vel og efnahagur hans er traustur. Í ljósi þessara styrkleika er ég sannfærður um að Arion sé afar vel í stakk búinn að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Ég þakka hluthöfum bankans fyrir traustið. Starfsfólki Arion, stjórn og viðskiptavinum þakka ég árangursríkt samstarf.“

Tilnefningarnefnd Arion banka, sem auglýsti eftir framboðum til stjórnar 4. janúar síðastliðinn, hefur lengt frest til að tilkynna nefndinni um framboð, kjósi frambjóðendur að fá umsögn tilnefningarnefndar, til 21. febrúar næstkomandi. Almennur framboðsfrestur er sem fyrr 5 dögum fyrir aðalfund, til 8. mars 2024 kl. 16.00.

Fundur fyrir markaðsaðila fimmtudaginn 8. febrúar kl. 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Ólafur Hrafn Höskuldsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. 

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á vefsíðu bankans.

Markaðsdagur Arion banka verður haldinn þann 1. mars og aðalfundur bankans 13. mars.

 

Press release Arion Bank Q4 2023

Arion Bank investor presentatation Q4 2023

Arion banki ársreikningur samstæðu 2023 

  

Fyrirvari
Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.

 

Til baka


Fleiri fréttir

07. maí 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi.
More
30. apríl 2024

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Hagnaður Arion banka á 1F 2024 var 4.432 m.kr., samanborið við 6.291 m.kr. á 1F 2023. Arðsemi eiginfjár var 9,1%, samanborið við 13,7% á 1F 2023.
More
07. febrúar 2024

Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2023 og á árinu 2023

Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði.
More
26. október 2023

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
More
26. júlí 2023

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 7.091 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2023 og 13.382 m.kr. á fyrri helmingi ársins. Arðsemi eiginfjár var 15,5% á ársfjórðungnum og 14,5% á fyrri helmingi ársins.
More
04. maí 2023

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.291 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eiginfjár var 13,7%. Heildareignir námu 1.501 ma.kr. í lok mars, samanborið við 1.470 ma.kr. í árslok 2022.
More

    Hafðu samband


    Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík • kt: 581008-0150 • Swift: ESJAISRE • arionbanki@arionbanki.is