• Netbankinn
Netbankinn

Fjárfestatengsl

Afkomukynning 2F 2024
  • Forsíðuyfirlit
  • Fjárhagsupplýsingar
    • Uppgjör og ársskýrslur
    • Áhætta og eiginfjárhlutfall
    • Ársskýrslur
    • Aðrar kynningar
    • Fjárhagsleg markmið
    • Greinendur
  • Hlutabréfafjárfestar
    • Fjárhagsdagatal
    • Áskrift
    • Tengiliðir
    • Lánshæfismat
    • Hluthafalisti
    • Flagganir
    • Skráð hlutabréf
  • Skuldabréfafjárfestar
    • Fjármögnun og útgáfulýsing
    • Endanlegir skilmálar
    • Sértryggð skuldabréf
    • Græn skuldabréf
    • Útgáfuáætlun Arion banka árið 2023
    • Lánshæfismat
    • Tengiliðir skuldabréfafjárfesta
  • Markaðsdagur Arion banka
    • Markaðsdagur Arion banka 2019
    • Markaðsdagur Arion banka 2021
  • Kauphallartilkynningar
    • Áskrift að Kauphallartilkynningum
  • Tengiliðir
  • Hluthafafundir
    • Aðalfundur / AGM 13.03.2024
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2023
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2022
    • Aðalfundur / AGM 16.03.2021
    • Framhaldsaðalfundur / Extended AGM 14.05.2020
    • Aðalfundur / AGM 17.03.2020
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 09.08.2019
    • Aðalfundur / AGM 20.03.2019
    • Hluthafafundur / Shareholders' meeting 05.09.2018
    • Aðalfundur / AGM 15.03.2018
  • Stjórnarhættir
  • Starfsemi
  • Dótturfélög
  • Hlutafjárútboð
  • English

Frétt

30. apríl 2024

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Lykiltölur á 1F 2024

  • Hagnaður Arion banka á 1F 2024 var 4.432 m.kr., samanborið við 6.291 m.kr. á 1F 2023
  • Arðsemi eiginfjár var 9,1%, samanborið við 13,7% á 1F 2023
  • Hagnaður á hlut var 3,07 krónur, samanborið við 4,32 á 1F 2023
  • Hreinn vaxtamunur var 3,1%, óbreyttur frá 1F 2023
  • Þóknanastarfsemin skilar lægri tekjum en undanfarna fjórðunga og námu heildarþóknanir 3,4 mö.kr.
  • Kjarnatekjur, þ.e. hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur (án rekstrarkostnaðar tryggingastarfseminnar), drógust saman um 2% í samanburði við 1F 2023, aðallega vegna þóknanastarfseminnar
  • Virkt skatthlutfall var 37,8% sem er óvenju hátt og skýrist af óhagstæðri samsetningu tekna
  • Kostnaður sem hlutfall af kjarnatekjum var 48,4% á 1F, samanborið við 46,8% á 1F 2023
  • Efnahagsreikningur bankans hefur stækkað um 1,2% frá árslokum 2023
  • Greiddur var 13,1 ma.kr. arður á fjórðungnum sem samsvaraði 9,0 krónum á hlut
  • Lán til viðskiptavina hafa aukist um 2,2% á fjórðungnum. Hækkun á lánum til fyrirtækja var 3,2% og 1,4% á lánum til einstaklinga, einkum íbúðalán
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 1,2% á fjórðungnum
  • Eiginfjárhlutfall bankans (CAR hlutfall) var 23,2% og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 var 18,8% í lok mars. Hlutföllin taka tillit til óendurskoðaðs hagnaðar fjórðungsins að teknu tilliti til væntrar arðgreiðslu, sem nemur 50% af hagnaði í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans, og heimilaðra endurkaupa eigin bréfa að fjárhæð 5 ma.kr. Eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 22,9% í lok mars og hlutfall eiginfjárþáttar 1 18,6%. Eiginfjárhlutfall og hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 eru vel umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs er undir markmiðum okkar. Lægri afkoma nú skýrist fyrst og fremst af lægri þóknanatekjum og háu skatthlutfalli þar sem tap vegna hlutabréfa sem haldið er gegn framvirkum samningum leiðir til 38% skatthlutfalls á fjórðungnum. Eiginfjár- og lausafjárstaða er áfram mjög sterk sem og fjármögnun bankans. Við vinnum nú að því að ná markmiðum okkar varðandi hlutfall eiginfjárþáttar 1. Í lok tímabilsins var hlutfallið 18,8% sem er 3,5 prósentustigum yfir kröfum eftirlitsaðila en markmið okkar er að vera 1,5-2,5 prósentustigum yfir þeirra kröfum. Í gangi er endurkaupaáætlun sem er liður í því að færa hlutfallið nær markmiði okkar.

Við sjáum að nokkuð hefur hægst á umsvifum í efnahagslífinu í ljósi hárra stýrivaxta og er það eitt af því sem hefur áhrif til lækkunar á þóknanatekjum tímabilsins. Við lokuðum einnig þjónustu okkar á Keflavíkurflugvelli í lok janúar, í kjölfar útboðs ISAVIA, eftir að hafa verið með starfsemi á flugvellinum frá árinu 2016. Við erum stolt að þeirri þjónustu sem við buðum gestum flugvallarins á þessum viðburðaríku árum. Starfsfólk okkar lagði sig fram um að taka vel á móti öllum þeim sem fóru um flugvöllinn og stóð sig frábærlega, á stundum við krefjandi aðstæður.

Nýverið keypti nýr sjóður á vegum Stefnis, dótturfélags Arion banka, Heimstaden á Íslandi. Um er að ræða stærsta íbúðaleigufélag landsins en félagið á um 1.600 íbúðir hér á landi. Nær allir lífeyrissjóðir landsins koma að sjóðnum sem er um 40 milljarðar að stærð. Markmið sjóðsins er að stuða að uppbyggingu íbúðahúsnæðis hér á landi og tvöfalda fjölda íbúða í eigu félagsins fyrir árið 2030. Það er mjög ánægjulegt hve vel tókst til við stofnun sjóðsins og hve breið þátttaka lífeyrissjóða er í þessu mikilvæga verkefni.“

Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 2. maí kl. 8:30

Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 2. maí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Ólafur Hrafn Höskuldsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs munu kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður streymt beint.

Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. 

Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.

Fjárhagsdagatal

Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.

Q1 2024 - Press release Arion Bank

Arion Bank Investor Presentation Q1 2024

Arion Bank - Condensed Consolidated Interim Financial Statements 31 March 2024

 
Fyrirvari

Tilkynning þessi inniheldur framtíðarsýn sem endurspeglar núverandi viðhorf stjórnenda um framtíðina og mögulegan fjárhagslegan árangur. Upplýsingarnar eru byggðar á gögnum félagsins, sem fyrir liggja, þegar tilkynningin er birt. Þó Arion banki telji að gefnar væntingar séu raunhæfar er enga vissu hægt að gefa fyrir því að þær gangi eftir. Af þeim sökum getur endanleg niðurstaða orðið umtalsvert frábrugðin umræddum væntingum. Þeir þættir sem mikilvægastir eru og gætu valdið annarri útkomu hjá Arion banka eru meðal annars eftirfarandi: a) þróun efnahagsumhverfis, b) þróun verðbólgu, vaxta og gjaldmiðla, c) þróun samkeppnisumhverfis og d) breytingar á regluverki og aðrar aðgerðir stjórnvalda. Þessir þættir eru alls ekki tæmandi taldir. Tilkynning þessi gefur ekki til kynna að Arion banki hyggist eða hafi breytt sinni framtíðarsýn á neinn hátt, umfram það sem þegar liggur fyrir um breytingar á lögum eða gildandi kauphallarreglum, ef og þegar aðstæður koma upp sem kalla á breytingar frá þeim tíma er tilkynning þessi var birt. Arion banki ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af notkun upplýsinga í tilkynningu þessari. Óheimilt er að afrita, breyta, endurbirta eða dreifa upplýsingum í tilkynningunni án skriflegs samþykkis Arion banka.

 

Til baka


Fleiri fréttir

07. maí 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2025

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi.
More
30. apríl 2024

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2024

Hagnaður Arion banka á 1F 2024 var 4.432 m.kr., samanborið við 6.291 m.kr. á 1F 2023. Arðsemi eiginfjár var 9,1%, samanborið við 13,7% á 1F 2023.
More
07. febrúar 2024

Afkoma Arion banka á fjórða ársfjórðungi 2023 og á árinu 2023

Afkoma Arion samstæðunnar á árinu 2023 var góð og í samræmi við markmið okkar. Þriðja árið í röð nást öll helstu fjárhagsmarkmið ársins. Þannig einkennist starfsemi okkar af stöðugleika sem meðal annars byggist á einstöku og fjölbreyttu þjónustuframboði.
More
26. október 2023

Afkoma Arion banka á þriðja ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.131 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2023 og 19.513 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Arðsemi eiginfjár var 12,9% á ársfjórðungnum og 13,9% á fyrstu níu mánuðum ársins.
More
26. júlí 2023

Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 7.091 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2023 og 13.382 m.kr. á fyrri helmingi ársins. Arðsemi eiginfjár var 15,5% á ársfjórðungnum og 14,5% á fyrri helmingi ársins.
More
04. maí 2023

Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi 2023

Hagnaður Arion banka nam 6.291 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi og arðsemi eiginfjár var 13,7%. Heildareignir námu 1.501 ma.kr. í lok mars, samanborið við 1.470 ma.kr. í árslok 2022.
More

    Hafðu samband


    Arion banki, Borgartúni 19, 105 Reykjavík • kt: 581008-0150 • Swift: ESJAISRE • arionbanki@arionbanki.is