Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
“Afkoma Arion banka á fyrsta ársfjórðungi er í samræmi við markmið þrátt fyrir ýmsar áskoranir í ytra umhverfi. Það var góður meðbyr á nær öllum sviðum starfseminnar en styrkur Arion samstæðunnar er ekki síst fjölbreytni þjónustunnar sem nær til flestallra sviða fjármála heimila, fyrirtækja og fjárfesta. Tekjusköpun er því mjög fjölbreytt sem hefur sveiflujafnandi áhrif og eykur áhættudreifingu í starfsemi okkar. Áfram er fjárhagslegur styrkur samstæðunnar mikill og eigin- og lausafjárstaða góð sem gerir okkur kleift að efla þjónustu okkar og takast á við margvíslegar áskoranir í ytra umhverfi.
Að þróa og efla þjónustu bankans hefur einmitt verið í forgangi undanfarna mánuði og ár og verður áfram. Það á jafnt við um stafrænu þjónustuleiðirnar okkar og þá persónulegu þjónustu sem við veitum viðskiptavinum okkar í útibúum og þjónustuveri. Við sjáum árangur þeirrar vinnu meðal annars í vinsældum Arion appsins. Á meðal nýjunga, sem við kynntum í upphafi árs, er nýtt fríðindakerfi fyrir viðskiptavini okkar sem er aðgengilegt í Arion appinu. Fríðindi viðskiptavina ráðast af umfangi þeirrar þjónustu sem þeir sækja til Arion samstæðunnar. Horft er til bankaþjónustu Arion banka, eins og innlána, greiðslukorta og íbúðalána, heimilistrygginga Varðar og viðskipta í sjóðum Stefnis. Einnig er horft til lífeyrismála og þá bæði þeirra valkosta sem Arion banki býður undir merkjum Lífeyrisauka og þess viðbótarlífeyris sem fólk hefur falið Frjálsa lífeyrissjóðnum að ávaxta, en sjóðurinn er í rekstri og eignastýringu hjá Arion banka. Við erum með metnaðarfull áform um frekari uppbyggingu kerfisins þar sem við umbunum viðskiptavinum okkar fyrir að velja okkur sem samstarfsaðila þegar kemur að fjármálum heimilisins.
Það náðist ánægjulegur áfangi á fjórðungnum þegar deiliskipulag Arnarlandsins í Garðabæ var samþykkt. Markmiðið með nýju deiliskipulagi er að skapa líflegt hverfi með íbúðum, þjónustu og atvinnustarfsemi. Hverfið verður fjölbreytt og er gert ráð fyrir um 450 íbúðum, nærþjónustu og starfsemi heilsuklasa þar sem áhersla er á fyrirtæki tengd heilsu og hátækni. Landey, fasteignaþróunarfélag í eigu Arion banka, á 51% í Arnarlandi og hefur þessi áfangi því jákvæð áhrif á uppgjör Arion samstæðunnar á fjórðungnum. Aðrar eignir Landeyjar eru lóðir og fasteignir á Blikastaðalandi í Mosfellsbæ og lóð og verksmiðjuhúsnæði í Helguvík. Markmið Landeyjar er að auka verðmæti eigna sinna með áframhaldandi þróun og uppbyggingu þessara svæða.”
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 8. maí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka mun kynna afkomu bankans og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka mun fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.