Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:
“Afkoma annars ársfjórðungs er góð og umfram væntingar. Góð afkoma skýrist af ýmsum þáttum, en mestu skiptir að þær stoðir sem mynda fjölbreytta starfsemi Arion samstæðunnar gengu nær allar vel á fjórðungnum. Þá hefur markaðsfjármögnun bankans þróast með jákvæðum hætti. Hvað þjónustu við fyrirtæki viðkemur var þetta með umsvifameiri ársfjórðungum, bæði í lánveitingum og ráðgjöf, þar sem lækkandi vaxtaumhverfi hefur leitt til aukinna fjárfestinga í hagkerfinu. Einnig hefur virðisbreyting á eignarhlut Arion í Arnarlandi í Garðabæ, sem nú er í söluferli, jákvæð áhrif á uppgjör bankans. Eigin- og lausafjárstaða bankans er sem fyrr sterk.
Stóru tíðindin eru vissulega viljayfirlýsing Arion banka og Kviku banka um samruna félaganna sem undirrituð var 6. júlí síðastliðinn. Viljayfirlýsingin felur í sér að hluthafar Kviku fá 26% hlut í sameinuðu félagi nái samruninn fram að ganga. Markmiðið er að til verði sterkt fjármálafyrirtæki sem býður heildstæða þjónustu fyrir viðskiptavini. Verði af samrunanum mun það efla þá fjármálaþjónustu sem sameinað félag veitir einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum. Samruninn getur skapað tækifæri til breiðari tekjumyndunar, áhættudreifingar og aukins hagræðis í starfsemi sameinaðs félags og þar með á íslenskum fjármálamarkaði.
Arion appið er langvinsælasta þjónustuleiðin okkar og það er okkur auðvitað metnaðarmál að þróa hana og bæta þannig að appið mæti sem best þörfum viðskiptavina okkar. Því er ánægjulegt að Arion appið var níunda árið í röð valið besta bankaappið af viðskiptavinum bankanna í könnun Maskínu. Til viðbótar því að geta sinnt öllum helstu bankaviðskiptum í appinu geta foreldrar fylgst með virkni á reikningum barna sinna og stofnað bæði sparnaðarreikninga og debetkort fyrir þau. Einnig er hægt að sinna verðbréfaviðskiptum, fjárfesta í sjóðum Stefnis og fá góða yfirsýn yfir stöðu lífeyrissparnaðar og tryggingar hjá Verði. Í appinu er sömuleiðis einfalt að skrá sig í Arion fríðindi því við viljum að viðskiptavinir okkar njóti góðs af því að vera í viðskiptum við okkur.
Við lukum á ársfjórðungnum formlega kaupum á starfsemi ráðgjafafyrirtækisins Arngrimsson Advisors Ltd. og er þjónustan sem félagið býður nú hluti af þjónustuframboði bankans. Félagið sinnir eignastýringarráðgjöf fyrir fagfjárfesta með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar. Viðskiptavinir Arion njóta góðs af alþjóðlegum tengslum og þeirri viðamiklu reynslu á sviði fjárfestinga fyrir einstaklinga, lífeyrissjóði, trygginga- og fjárfestingarfélög sem byggð hefur verið þar upp í áranna rás. Um er að ræða viðbót við það samstarf sem Arion banki hefur átt við erlend fjármálafyrirtæki á undanförnum árum og fjölgar þannig þeim valkostum sem viðskiptavinum okkar standa til boða, sérstaklega þegar kemur að fjárfestingum í erlendum sérhæfðum sjóðum.”
Fjárfestafundur fyrir markaðsaðila verður fimmtudaginn 31. júlí klukkan 8:30 í Borgartúni 19 þar sem Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka og Iða Brá Benediktsdóttir aðstoðarbankastjóri munu kynna afkomu bankans og fara yfir stöðu efnahagslífsins. Fundurinn fer fram á ensku og verður einnig streymt beint.
Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans.
Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum.
Fjárhagsdagatal Arion banka er aðgengilegt á heimasíðu bankans.