Sérhæfing í rekstri lífeyrissjóða

Sérsniðin rekstrarþjónusta fyrir lífeyrissjóði sem vilja útvista starfseminni sinni, að hluta eða í heild, allt eftir þörfum hvers sjóðs. Við mótum þjónustuna í nánu samráði við viðskiptavini til að hámarka skilvirkni, lágmarka rekstraráhættu og tryggja að þjónustan uppfylli markmið sjóðsins.  Með stærðarhagkvæmni og sérhæfingu náum við árangri til lengri tíma.

Viltu vita meira um þjónustuna? Sendu okkur línu á throunogrekstur@arionbanki.is og við höfum samband.

Langtímaviðskipti byggð
á trausti og fagmennsku

Frjálsi lífeyrissjóðurinn

Stærsti séreignasjóður landsins, opinn öllum og án skylduaðildar. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá upphafi.

Lífeyrisauki

Séreignasjóður bankans sem býður upp á viðbótarlífeyrissparnað. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá stofnun 1998.

EFÍA

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna er opinn öllum félagsmönnum FÍA. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2012.

Lífeyrissjóður Rangæinga

Samtryggingarsjóður opinn öllum, með skylduaðild fyrir ákveðin aðildarfélög. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2000.

LSBÍ

Hlutfallssjóður fyrir starfsmenn Búnaðarbanka Íslands, lokaður nýjum sjóðfélögum frá árinu 1998. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2003.

Áhersla á stafrænar lausnir

Markmið okkar er að veita öfluga, áreiðanlega og sveigjanlega lausn sem einfaldar rekstur lífeyrissjóða og bætir upplifun sjóðfélaga. 

Við höfum lagt mikla áherslu á stafræna vegferð til að mæta þörfum sjóðfélaga og launagreiðenda. Sjóðfélögum býðst einstök yfirsýn yfir lífeyrismál sín í Arion appinu.

Þá höfum við jafnframt lagt áherslu á sjálfvirknivæðingu og nýtt tæknina til að endurhanna vinnuferla í rekstri sjóðanna með það að markmiði að minnka rekstraráhættu og auka hagkvæmni. 

Þjónustuþættir


Þjónusta við sjóðfélaga

Gott aðgengi að sérfræðingum bankans sem veita sjóðfélögum og launagreiðendum persónulega og fjölbreytta þjónustu m.a. útgreiðsluráðgjöf fyrir sjóðfélaga og erfingja.


Gæða- og áhættustýring

Virk gæða- og áhættustýring, úttektir og greiningar sem tryggja öruggan rekstur. Lykilþjónusta við innri endurskoðun, regluvörslu og persónuverndarráðgjöf.


Samskipti við ytri aðila

Samskipti við aðra lífeyrissjóði og stofnanir auk þátttöku í verkefnum á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða.


Nákvæm og skilvirk bakvinnsla

Nákvæm og skilvirk bakvinnsla sem styður við rekstur lífeyrissjóða ásamt öflugri innheimtuþjónustu.


Stafrænar lausnir

Sjóðfélagar fá góða yfirsýn yfir lífeyrissparnað sinn og lífeyrissjóðslán í Arion appinu sem er í stöðugri framþróun.


Stuðningur við starfsemi

Aðstaða til stærri funda og undirbúningur við framkvæmd þeirra, skýrslugjöf o.fl.

Fróðleikur fyrir stjórnir
og starfsfólk lífeyrissjóða

Lífeyrisbókin er fræðirit sem veitir víðtæka innsýn í málefni lífeyrissjóða og er ætlað stjórnum, starfsfólki og öllum þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á þessu mikilvæga sviði. Markmiðið er að efla skilning á umhverfi lífeyrissjóða og þeim þáttum sem skipta máli í rekstri þeirra.

Stjórnir bera ábyrgð á starfsemi sjóðanna og því er lykilatriði að þær búi yfir traustri þekkingu á lífeyrismálum.

Opna Lífeyrisbókina

Sérfræðingar okkar


Forstöðumaður

Sigrún Hauksdóttir

sigrun.hauksdottir@arionbanki.is

Framkvæmdastjóri LSBÍ og EFÍA

Guðmundur Thorlacius Ragnarsson

gudmundur.t.ragnarsson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Hlynur Magnússon

hlynur.magnusson@arionbanki.is

Verkefnastjóri

Rut Valgeirsdóttir

rut.valgeirsdottir@arionbanki.is

Áhættustjóri Lífeyrissjóða

Valgeir Geirsson

valgeir.geirsson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Berglind Guðmundsdóttir

berglind.gudmundsdottir@arionbanki.is

Verkefnastjóri

Guðný Helga Lárusdóttir

gudny.helga.larusdottir@arionbanki.is

Sérfræðingur

Lára Sabido

lara.s@arionbanki.is

Verkefnastjóri

Sigurrós Lilja Grétarsdóttir

sigurros.gretarsdottir@arionbanki.is

Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Rangæinga

Þröstur Sigurðsson

throstur.sigurdsson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Berglind Helgadóttir

berglind.helgadottir@arionbanki.is

Sérfræðingur

Helga Sveinbjörnsdóttir

helga.sveinbjornsdottir@arionbanki.is

Sérfræðingur

Matthías Sylvíuson

matthias.sylviuson@arionbanki.is

Sérfræðingur

Unnur Elín Jónsdóttir

unnur.jonsdottir@arionbanki.is