Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Stærsti séreignasjóður landsins, opinn öllum og án skylduaðildar. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá upphafi.
Sérsniðin rekstrarþjónusta fyrir lífeyrissjóði sem vilja útvista starfseminni sinni, að hluta eða í heild, allt eftir þörfum hvers sjóðs. Við mótum þjónustuna í nánu samráði við viðskiptavini til að hámarka skilvirkni, lágmarka rekstraráhættu og tryggja að þjónustan uppfylli markmið sjóðsins. Með stærðarhagkvæmni og sérhæfingu náum við árangri til lengri tíma.
Viltu vita meira um þjónustuna? Sendu okkur línu á throunogrekstur@arionbanki.is og við höfum samband.
Stærsti séreignasjóður landsins, opinn öllum og án skylduaðildar. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá upphafi.
Séreignasjóður bankans sem býður upp á viðbótarlífeyrissparnað. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá stofnun 1998.
Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna er opinn öllum félagsmönnum FÍA. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2012.
Samtryggingarsjóður opinn öllum, með skylduaðild fyrir ákveðin aðildarfélög. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2000.
Hlutfallssjóður fyrir starfsmenn Búnaðarbanka Íslands, lokaður nýjum sjóðfélögum frá árinu 1998. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2003.
Markmið okkar er að veita öfluga, áreiðanlega og sveigjanlega lausn sem einfaldar rekstur lífeyrissjóða og bætir upplifun sjóðfélaga.
Við höfum lagt mikla áherslu á stafræna vegferð til að mæta þörfum sjóðfélaga og launagreiðenda. Sjóðfélögum býðst einstök yfirsýn yfir lífeyrismál sín í Arion appinu.
Þá höfum við jafnframt lagt áherslu á sjálfvirknivæðingu og nýtt tæknina til að endurhanna vinnuferla í rekstri sjóðanna með það að markmiði að minnka rekstraráhættu og auka hagkvæmni.
Gott aðgengi að sérfræðingum bankans sem veita sjóðfélögum og launagreiðendum persónulega og fjölbreytta þjónustu m.a. útgreiðsluráðgjöf fyrir sjóðfélaga og erfingja.
Virk gæða- og áhættustýring, úttektir og greiningar sem tryggja öruggan rekstur. Lykilþjónusta við innri endurskoðun, regluvörslu og persónuverndarráðgjöf.
Samskipti við aðra lífeyrissjóði og stofnanir auk þátttöku í verkefnum á vegum Landssamtaka lífeyrissjóða.
Nákvæm og skilvirk bakvinnsla sem styður við rekstur lífeyrissjóða ásamt öflugri innheimtuþjónustu.
Sjóðfélagar fá góða yfirsýn yfir lífeyrissparnað sinn og lífeyrissjóðslán í Arion appinu sem er í stöðugri framþróun.
Aðstaða til stærri funda og undirbúningur við framkvæmd þeirra, skýrslugjöf o.fl.
Lífeyrisbókin er fræðirit sem veitir víðtæka innsýn í málefni lífeyrissjóða og er ætlað stjórnum, starfsfólki og öllum þeim sem vilja dýpka þekkingu sína á þessu mikilvæga sviði. Markmiðið er að efla skilning á umhverfi lífeyrissjóða og þeim þáttum sem skipta máli í rekstri þeirra.
Stjórnir bera ábyrgð á starfsemi sjóðanna og því er lykilatriði að þær búi yfir traustri þekkingu á lífeyrismálum.
Við notum vafrakökur til að bæta upplifun þína á vefnum. Lestu um hvernig við notum vafrakökur og hvernig þú getur stjórnað þeim með því að smella á "Stillingar fótspora".